Slysavarnadeildin í Reykjavík og Slysavarnadeildin Varðan á Seltjarnanesi styrktu Björgunarsveitina Víkverja á Vík í Mýrdal en þau voru að safna fyrir dróna til þess að styrkja störf sveitarinnar. Sveitin er m.a. fyrsta viðbragð í Reynisfjöru og auðvitað á stóru landssvæði þar um kring. Dróninn sem er sá fyrsti í þessari stærðargráðu í eigu björgunarsveitar mun sannarlega nýtast þeim vel við leit og björgun.

Sumir eru svo lánsamir í lífinu að það kviknar aldrei í hjá þeim. Aðrir lenda í miklum áföllum vegna eldsvoða. Glata eigum sínum og týna jafnvel lífinu eða missa ástvini. Vandinn er að eldsvoðar gera sjaldnast boð á undan sér og enginn veit fyrirfram í hvorum hópnum hann lendir.

Með traustum eldvörnum má koma í veg fyrir tjón á lífi, heilsu og eignum. Reykskynjarar eru algjört forgangsatriði. Þeir bjarga mannslífum þegar mest á reynir. Ef ekki eru nægilega margir reykskynjarar heima hjá þér skaltu bæta úr því strax. Það þolir enga bið!

Reykskynjarar ættu að:

  • Vera staðsettir á öllum hæðum heimilisins
  • Vera til staðar í öllum svefnherbergjum heimilisins
  • Vera alls staðar þar sem raftæki eru
  • Vera prófaðir reglulega, helst mánaðarlega (bíííb)
  • Hafa rafhlöður í lagi
  • Vera yngri en tíu ára 


Þroski barna er mjög hraður og fyrstu árin eru ár tilrauna og uppgvötunar. Heimilið er griðastaður fjöskyldunar og því kemur mörgum það á óvart að börn slasast helst á heimilinu. Það er afar mikilvægt að foreldrar og aðrir ummönunaraðilar fari yfir heimilið með tilliti til öryggis barnanna. Þetta á að sjálfsögðu einnig við heima hjá ömmu og afa.Eiturefni: Uppþvottavélarduft og/eða uppþvottatöflur sem og önnur hreinsi- og eiturefni á öruggum stað þar sem barnið nær ekki til. Það sama gildir um lyf, vítamín og rafhlöður.Stigar, gluggar og hurðir: Er öryggishlið efst og neðst við stigaop? Opnanleg fög á gluggum þurfa að vera minni en 9 cm og stormjárn klemmufrí. Snúrur á rimlagardínum/rúllugardínum geta verið hættulegar og eins þarf að huga að því að það sé öryggisgler í hurðum og borðplötum. Algengt er að börn klemmi sig á hurðum og það er einfallt að koma í veg fyrir það með klemmuvörn. Það sama gildir um útidyrahurð og svalahurð sem ætti alltaf að vera með pumpu og öryggislæsingu.Eldhúsið: Oddhvassir hlutir eins og hnífa og skæri þarf að geyma þar sem barn nær ekki til. Það sama gildir um plastpoka og plastfilmur. Eldavélin er algeng orsök slysa. Takkarnir þurfa að vera varðir fyrir litlum fiktandi fingrum og hurðin á bakaraofninum með kælingu þannig að hún hitni ekki að utan og hlíf fyrir eldavélaborði/hellum. Gætið einnig að því að snúrur á rafmagnstækjum séu utan seilingar þannig að barnið geti ekki togað yfir sig tækin? Það er einnig nokkuð algengt að slys verði þegar beislið er ekki notað í matarstól barnsins.Baðherbergið: Rakvélar, skæri og önnur hættuleg áhöld skal geyma þar sem barn nær ekki til. Það sama gildir um snyrtivörur og hreinsiefni sem oft eru í spennandi umbúðum. Hálkuvörn þarf að vera í baðkeri eða sturtubotni og hitastýrð blöndunartæki. Rafmagn og rafmagnstæki: Er lekastraumsrofi í rafmagnstöflu og virkar hann? Allar innstungur og fjöltengi með barnaöryggi. Sjónvarpið stöðugt og fest á undirstöðu sem það stendur á. Það þarf sérstaklega að passa rafmagnsrakvélina, hárþurrkarann og sléttujárnið sem er mjög algengur slysavaldur.Önnur mikilvæg öryggisatriði: Aldrei sleppa hendi af barni sem er á skiptiborði og alltaf að nota öryggisólar ef þær eru til staðar. Eru kojur og rúm með fallvörn? Hæfa leikföngin aldri barnanna? Eru miðstöðvarofnar sem geta hitnað mikið varðir fyrir smábörnum? Gott er að hafa öryggishlífar á oddhvössum borðhornum og festa hillusamstæður og skápa við vegg? Skotvopn eiga undir öllum kringumstæðum að vera í læstum byssuskápum.Eldvarnir heimilisinsGóðar eldvarnir skipta gríðarlega miklu máli enda oft um lífshættulegar aðstæður að ræða þegar bruni er annars vegar. Reykskynjarar ættu að vera minnst tveir á heimilinu og ef það er gaseldavél þá einnig gasskynjari. Slökkvitæki sem er sýnilegt og aðgengilegt og eldvarnateppi í eldhúsinu. Það þarf svo að yfirfara þessi tæki árlega.Muna svo eftir litla fólkinu þegar kemur að eldspýtum og kveikjurum. Sé arinn á heimilinu skal hafa hlíf fyrir eldinum. Að lokum er nauðsynlegt að fjölskyldan geri áætlun um hvernig á að yfirgefa heimilið ef eldur kemur upp. Slík flóttaáætlun getur ráðið úrslitum um hvort allir komast heilir út. Ekki má gleyma mikilvægi þess að allir heimilismeðlimir kunni neyðarnúmerið 112.

Slysavarnadeildin í Reykjavík fagnar sumri með opnu húsi þann 25. apríl nk. frá kl. 11.00 – 14.00 . Boðið verður upp á vöfflur og kaffi og Veltibíllinn kemur í heimsókn. Við erum á Grandagarði 1, 101 Reykjavík.

Allir velkomnir.

22. febrúar síðastliðinn varð Slysavarnadeildin Unnur á Patreksfirði 90 ára og var haldið upp á afmælið með pomp og prakt. Nærri 200 manns heimsóttu Unni til að samfagna deildinni með árnaðaróskum og góðum gjöfum. Á aðalfundi deildarinnar 28. febrúar voru svo 17 nýir félagar teknir inn í deildina, sem er frábært. Árnaðaróskir frá félögum í Slysavarnadeildinni í Reykjavík.

Slys á heimilinu eru algengustu slysin hjá ungum börnum. Á fyrstu árunum eru börnin stöðugt að prófa nýja hluti og athuga hversu langt þau komast. Það er því til mikils að vinna að gera heimilið eins öruggt og hægt er.  Félagar í Slysavarnadeildinni í Reykjavík dreifa 1500 gjöfum/umslögum á heilsugæslustöðvar í Reykjavík.  Starfsólk heilsugæslunnar sér svo um að afhenda nýbökuðum foreldrum pakkana sem innihalda m.a. bækling félagsins „Öryggi barna á heimilum“.  Bæklingurinn er gátlisti sem auðveldar foreldrum að skoða hvort á heimilinu leynast slysagildrur sem hægt er að lagfæra.

Allir öruggir heim 2022! – Endurskinsvesti fyrir leik- og grunnskóla landsins
Slysavarnafélagið Landsbjörg, Neyðarlínan, Dynjandi, Samgöngustofa, RARIK, Ueno, TM, Orkan,
Samsung/Tæknivörur, Brim, Vörumiðlun, Arion banki, Efla, Klettur, Terra og Samkaup gefa þessa dagana
endurskinsvesti í alla leik- og grunnskóla á landinu til að nota í vettvangsferðum barna.
Um er að ræða 9.000 vesti sem dreifast um land allt.
Endurskinsvesti ætti að nota allt árið um kring, þannig eykst sýnileiki og öryggi barnanna til muna.
Einstaklingur með endurskin sést fimm sinnum fyrr en sá sem er ekki með neitt endurskin.
Það er von okkar hjá Slysavarnadeildinni í Reykjavík að þessi gjöf verði til þess að auka öryggi barna í umferðinni.

Slysavarnadeildin í Reykjavík boðar til aðalfundar 17.febrúar 2022 kl.19:30  í Gróubúð Grandagarði 1.

 Dagskrá aðalfundar skv lögum deildarinnar. 

Skipan fundarstjóra og fundarritara
Lögmæti aðalfundar staðfest
Skýrslur nefnda og stjórnar
Áritaðir reikningar fyrra árs kynntir og bornir upp til samþykktar
Lagabreytingar
Kjör stjórnar
Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga
Önnur mál    

Eftirfarandi framboð til stjórnar hafa borist:

Til formanns: Edda Guðmundsdóttir, til ritara: Rúna H. Hilmarsdóttir, til meðstjórnanda: Björn Bergmann

Árlega slasast rúmlega 20 þúsund börn á Íslandi og flest slys sem börn verða fyrir á aldrinum 0 til 5 ára gerast innan veggja heimilis þeirra. Heimili og umhverfi barna er alltaf á ábyrgð foreldra eða forráðamanna barna og þeim ber því skylda til að ganga úr skugga um að það sé eins öruggt og hægt er. 

Þroski barna er mjög hraður og fyrstu árin eru ár tilrauna og uppgvötunar.  Heimilið er griðastaður fjöskyldunar og því kemur mörgum það á óvart að börn slasast helst á heimilinu.  Það er  afar mikilvægt að foreldrar og aðrir ummönunaraðilar fari yfir heimilið með tilliti til öryggis barnanna.  Þetta á að sjálfsögðu einnig við heima hjá ömmu og afa.

Eiturefni: Uppþvottavélarduft og/eða uppþvottatöflur sem og önnur hreinsi- og eiturefni á öruggum stað þar sem barnið nær ekki til.  Það sama gildir um lyf, vítamín og rafhlöður.

Stigar, gluggar og hurðir: Er öryggishlið efst og neðst við stigaop? Opnanleg fög á gluggum þurfa að vera minni en 9 cm og stormjárn klemmufrí.  Snúrur á rimlagardínum/rúllugardínum geta verið hættulegar og eins þarf að huga að því að það sé  öryggisgler í hurðum og borðplötum.  Algengt er að börn klemmi sig á hurðum og það er einfallt að koma í veg fyrir það með klemmuvörn. Það sama gildir um útidyrahurð og svalahurð sem ætti alltaf að vera með pumpu og öryggislæsingu.

Eldhúsið:  Oddhvassir hlutir eins og hnífa og skæri þarf að geyma  þar sem barn nær ekki til.   Það sama gildir um plastpoka og plastfilmur.  Eldavélin er algeng orsök slysa. Takkarnir þurfa að vera varðir fyrir litlum fiktandi fingrum og hurðin á bakaraofninum með kælingu þannig að hún hitni ekki að utan og hlíf fyrir eldavélaborði/hellum.  Gætið einnig að því að snúrur á rafmagnstækjum séu utan seilingar þannig að barnið geti ekki togað yfir sig tækin?  Það er einnig nokkuð algengt að slys verði þegar beislið er ekki notað í matarstól barnsins.

Baðherbergið: Rakvélar, skæri og önnur hættuleg áhöld skal geyma þar sem barn nær ekki til.  Það sama gildir um snyrtivörur og hreinsiefni sem oft eru í spennandi umbúðum. Hálkuvörn þarf að vera í baðkeri eða sturtubotni og hitastýrð blöndunartæki. 

Rafmagn og rafmagnstæki: Er lekastraumsrofi í rafmagnstöflu og virkar hann? Allar innstungur og fjöltengi með barnaöryggi.  Sjónvarpið stöðugt og fest á undirstöðu sem það stendur á.  Það þarf sérstaklega að passa rafmagnsrakvélina, hárþurrkarann og sléttujárnið sem er mjög algengur slysavaldur.

Önnur mikilvæg öryggisatriði:  Aldrei sleppa hendi af barni sem er á skiptiborði og alltaf að nota öryggisólar ef þær eru til staðar.  Eru kojur og rúm með fallvörn?  Hæfa leikföngin aldri barnanna?  Eru miðstöðvarofnar sem geta hitnað mikið varðir fyrir smábörnum?  Gott er að hafa öryggishlífar á oddhvössum borðhornum og festa hillusamstæður og skápa við vegg?  Skotvopn eiga undir öllum kringumstæðum að vera í læstum byssuskápum.

Eldvarnir heimilisins

Góðar eldvarnir skipta gríðarlega miklu máli enda oft um lífshættulegar aðstæður að ræða þegar bruni er annars vegar. Reykskynjarar ættu að vera minnst tveir á heimilinu og ef það er gaseldavél þá einnig gasskynjari.  Slökkvitæki sem er sýnilegt og aðgengilegt og eldvarnateppi í eldhúsinu.  Það þarf svo að yfirfara þessi tæki árlega.

Muna svo eftir litla fólkinu þegar kemur að eldspýtum og kveikjurum.  Sé arinn á heimilinu skal hafa hlíf fyrir eldinum.  Að lokum er nauðsynlegt að fjölskyldan geri áætlun um hvernig á að yfirgefa heimilið ef eldur kemur upp.  Slík flóttaáætlun getur ráðið úrslitum um hvort allir komast heilir út.  Ekki má gleyma mikilvægi þess að allir heimilismeðlimir kunni neyðarnúmerið 112.