Allir öruggir heim 2022! – Endurskinsvesti fyrir leik- og grunnskóla landsins
Slysavarnafélagið Landsbjörg, Neyðarlínan, Dynjandi, Samgöngustofa, RARIK, Ueno, TM, Orkan,
Samsung/Tæknivörur, Brim, Vörumiðlun, Arion banki, Efla, Klettur, Terra og Samkaup gefa þessa dagana
endurskinsvesti í alla leik- og grunnskóla á landinu til að nota í vettvangsferðum barna.
Um er að ræða 9.000 vesti sem dreifast um land allt.
Endurskinsvesti ætti að nota allt árið um kring, þannig eykst sýnileiki og öryggi barnanna til muna.
Einstaklingur með endurskin sést fimm sinnum fyrr en sá sem er ekki með neitt endurskin.
Það er von okkar hjá Slysavarnadeildinni í Reykjavík að þessi gjöf verði til þess að auka öryggi barna í umferðinni.

Til hamingju með endurskinsvestin