Þann 31. október sl. fór fram virkilega áhugaverð ráðstefna um slysavarnir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Háskólanum í Reykjavík. Fjölmargir fyrirlestrar voru haldnir. Systurnar Anna Margrét og Lára Kristín Óskarsdætur og lýstu því hvaða áhrif það hafði á líf þeirra, tveggja menntaskólastúlkna, þegar móðir þeirra slasaðist illa í reiðhjólaslysi árið 2010. Móðir þeirra hafði fyrir reglu að hjóla með hjálm en í þetta eina skipti þá sleppti hún honum, þar sem stutt var að fara. Afleiðingarnar urðu skelfilegar og umturnuðu m.a. lífi systranna sem urðu að taka mikla ábyrgð á umönnun móður sinnar eftir slysið. Þær sýndu myndir og myndbönd frá lífi móður sinnar fyrir og eftir slysið. Á eftir þeim ræddi Hjalti Már Björnsson, bráðalæknir um notkagildi hjálma og kynnti rannsóknir um reiðjólaslys.
Þá tók við Garðar H. Guðjónsson, verkefnastjóri Eldvarnabandalagsins og ræddi eldvarnir á heimilum. Svanfríður A. Lárusdóttir, Slysavarnadeildinni í Reykjavík kynnti framtíðarverkefni deilarinnar og Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur á Kirkjubæjarklaustri ræddi um viðbragðsaðilar og björgunarsveitir í dreifbýlinu. Fjóla Guðjónsdóttir sérfræðingur frá Sjóvá greindi frá nýrri könnun og fór yfir hættur sem fylgja gífurlegri farsíma/snjallsímanotkun í umferðinni.
Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna steig næstur á stokk og rakti sögu um slysavarnir sjómanna og hvernig íslendingum hefur tekist að breyta algjörlegamenningu og hefðum hvað varðar notkun öryggistækja og annað tengt öryggismálum sjómanna. Fulltrúar frá Slysavarnadeildinni á Akureyri kynntu verkefni sem þau hafa verið að vinna með félagsmiðstöðum á Akureyri og sýndu myndband sem unglingar á Akureyri hafa gert um nauðsyn endurskinsmerkja.
Þá tók við kynning og umfjöllun um slys á ferðamönnum og fór Jónas Guðmundsson, verkefnisstjóri slysavarna ferðamanna hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, meðal annars yfir nýja samantekt á tölum yfir banaslys ferðmanna hér á landi en þær sýna að þeim hefur fækkað mikið frá því um aldamótin, eða um 80%, sé fjöldi banaslysa pr. 100.000 ferðamenn skoðaður. Jónas ræddi einnig um innviði í ferðaþjónustu, dæmi um hvað mætti bæta og hvar félagar í slysavarnafélaginu Landbjörg geta beitt sér. Eftir þetta tóku við fjörugar pallborðsumræður með þáttöku Ólafar Ýrr Atladóttur ferðamálastjóra, Gunnars Vals Sveinssonar frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Einari Pálssyni frá Vegagerðinni, Gunnari Geir Gunnarssyni frá Samgöngustofu og Jónasi Guðmundssyni frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Bekkurinn var þéttsetinn allan daginn og áhugi ráðstefnufólks leyndi sér ekki.