Þann 9. apríl var haldin vorfundur smábátasjómannasem streymt var frá Slysavarnaskóla sjómanna í samstarfi við Samgöngustofu og Landssamband smábátaeigenda en félagseiningar Slysavarnafélagsins á 16 stöðum um landið opnuðu hús sín fyrir sjómönnum þar sem boðið var upp á kaffi og beina útsendingu. Á fundinum var farið vel yfir öryggismál um borð í smábátum.
Rúmlega 400 sjómenn hittust eða fyylgdust með fundinum og Slysavarnadeildin í Reykjavík bauð upp á kaffi og köku í Sjávarklasanum á Granda.