Slysvarnadeildin Varðan á Seltjarnarnesi afhenti fyrir skömmu nemendum í 8. bekk (fermingarárgangi) í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi reykskynjara. Í unglingaherbergjum í dag er algengt að finna ýmis rafmagns- og hleðslutæki, sem getur skapað aukna eldhættu.
Hægt er að tengja þessa reykskynjara við smáforrit í símanum, þannig að notendur fá tilkynningu ef eitthvað gerist í herberginu. Með í för var slökkviliðsmaðurinn Guðjón Guðjónsson, sem fór yfir helstu hættur sem tengjast hleðslutækjum, tölvum og öðrum rafmagnstækjum.
Eldvarnamiðstöðin: Ólafur Gíslason & Co studdi verkefnið með rausnarlegum hætti og fá þau bestu þakkir fyrir.