Björgunarbátasjóður V-Barðastrandarsýslu fékk rausnarlega gjöf á dögunum sem mun hjálpa til við að efla öryggi sjófarenda á Vestfjörðum og við strendur Íslands. Slysavarnadeildin Unnur gaf 10 milljónir. Sannarlega frábært framtak og skref í átt að fjármögnun á nýju björgunarskipi á Patreksfirði og auknu öryggi sjófarenda.