Þann 21. maí 2026 kl. 19.30 mun Bogi Þorsteinsson skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna bjóða félögum úr slysavarnadeildinni í Reykjavík og gestum til fundar um borð í Sæbjörg og kynna starfsemi skólans.

Skólaskipið Sæbjörg er staðsett við Bótarbryggju í Reykjavíkurhöfn og þar um borð fer starfsemin að mestu fram. Hlutverk skólans er að halda uppi öflugu fræðslustarfi handa sjómönnum og öðrum í haftengdri starfsemi. Fræðslan miðast að slysavörnum og viðbrögðum við þeim hættum sem skapast geta á sjó og í annarri haftengdri starfsemi. Slysavarnaskóli sjómanna var stofnaður árið 1985 og er í eigu Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Heimsókn í Slysavarnaskóla sjómanna