Það eru gleðitíðindi að tilkynna að Bjössi brunabangsi er að flytja til Íslands. Bjössi kemur frá Þrándheimi í Noregi og hann hefur náð gríðarlegum vinsældum meðal allra aldurshópa í sínu heimalandi og er þetta í fyrsta skipti sem Bjössi leggur land undir fót.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er ábyrgðaraðili verkefnisins en Bjössi mun vera öllum slökkviliðum landsins til aðstoðar við fræðslu og forvarnarstarf, einkum þegar kemur að fræðslu fyrir yngstu kynslóðina. Bjössi hefur nú þegar tryggt sér stað í hjörtum margra íslenskra barna þar sem sjónvarpsþættir um Bjössa brunabangsa hafa verið sýndir á RÚV og hafa þættirnir slegið í gegn.
Um er að ræða stórt og metnaðarfullt verkefni sem stuðlar að bættum brunavörnum á heimilum landins til framtíðar.
Slysavarnadeildinni í Reykjavík tekur þátt í verkefninu með því að leggja öllum dælubílum landsins til upprunalega útgáfu af Bjössa bangsa sem slökkviliðsfólk getur svo fært börnum að gjöf þegar þau þurfa sem mest á kærleiksbirni að halda. Deildin mun svo á komandi árum fylla á lagerinn hjá Slökkviliðunum og styðja þannig við þeirra frábæra forvarnastarf í eldvörnum heimilanna.