Í dag, 25. júlí, er alþjóðlegur dagur forvarna gegn drukknun.  Á þessum degi sameinast Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO), stjórnvöld, samtök og samfélög víða um heim til að vekja athygli á því að árlega drukkna um 300.000 manns og er drukknun þriðja algengasta orsök dauðsfalla af slysförum.

Á Íslandi drukkna að meðaltali 6 – 7 einstaklingar á ári. Hættan er mest við vötn, straumharðar ár og strendur landsins. Þessi slys er hægt að koma í veg fyrir! Helstu mótvægisaðgerðinar eru:

  • Öflug sundkennsla
  • Notkun björgunarvesta
  • Stöðug fræðsla- og forvarnarstarf
  • Árvekni við sjó, ár og vötn

Alþjóðlegur dagur forvarna gegn drukknun