Laugardaginn 15. mars bauð slysavarnadeildin Varðan til sameiginlegs ævintýrafundar við útivistarperlu Seltjarnarness, Gróttu. Fundurinn fór fram í Albertsbúð, bátaskýli Rótary á Nesinu, og er þeim þakkað fyrir lánið. Mæting var góð og margir félagar úr ýmsum slysavarnadeildum lögðu leið sína út í eyjuna og upp í vitann, þar sem útsýnið tók á móti þeim áður en kjötsúpa, kaffi og konfekt biðu þeirra.

Guðrún B. Vilhjálmsdóttir sagði sögu vitans og vitavarðanna, með draugasögum í bland, og fær hún kærar þakkir fyrir frábæran fróðleik. Fundurinn var bæði uppörvandi og skemmtilegur, og voru þátttakendur sammála um að svona samverustundir milli deilda væru afar dýrmætar og hvetjandi fyrir áframhaldandi starf.

Ævintýranleg samkoma á besta stað